Frí heimsending þegar verslað er yfir 10.000 kr. eða meira, allt að 20 kg.
Menu
Innkaupakarfa
Engar vörur í körfu.

Kynning á sérhæfðum rúmum frá KayserBetten

08 febrúar, 2024 - 0 Comments

Kynning

Stuðlaberg heilbrigðistækni býður fagfólki á kynningu á sérhæfðum rúmum fyrir börn og ungmenni þriðjudaginn 27. febrúar kl. 10:00-13:00. Kynningin fer fram í sýningarsal Stuðlabergs að Stórhöfða 25, 3. hæð.

Julian Skott, sérfræðingur frá þýska fyrirtækinu KayserBetten, kynnir rúm sem uppfylla mismunandi þarfir notenda og umönnunaraðila, möguleika á sérsmíði og fleira.

KayserBetten er þýskt fyrirtæki sem hefur framleitt falleg og örugg rúm fyrir börn og ungmenni í yfir 40 ár.

Rúm frá KayserBetten eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands.

Skráning á kynninguna skal berast í gegnum netfangið stb@stb.is til og með 26. febrúar, þar sem tekið er fram nafn, fagheiti og vinnustaður.

Hádegismatur verður í boði í lok kynningar.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur.

ummæli (0)