SpeediCath® Control
Fyrir karlmenn sem vilja tæma þvagblöðruna með þvaglegg, hratt og þægilega.
SpeediCath® Control fyrir karlmenn er hannaður svo notandi geti haft betri stjórn á þvagleggnum
við uppsetningu í þvagrás.
Þvagleggurinn hentar öllum karlmönnum sem þurfa að tæma blöðruna með þvaglegg.
SpeediCath Control hefur sömu eiginleika og aðrir SpeediCath þvagleggir.
Endinn næst tenginu er stífari en sjálfur leggurinn sem auðveldar til muna stjórn á þeim enda sem
fer upp í þvagrásina, líka fyrir einstaklinga með skerta hreyfigetu í höndum.
SpeediCath Control er með sömu yfirborðsmeðhöndlun og aðrir SpeediCath þvagleggir, sem lágmarkar viðnám bæði við uppsetningu og þegar þvagleggurinn er fjarlægður.
Það gerir blöðrutæminguna þægilegri og dregur úr áhættunni á að skaða þvagrásina þegar til lengri tíma er litið.
Kostirnir við SpeediCath Control
- Betri stjórn á þvaglegg við uppsetningu
- Auðveldara að handleika þar sem þvagleggurinn helst stífur þegar þrætt er framhjá blöðruhálskirtli og lokuvöðva
- Tilbúinn til notkunar
Magn í pakka
30 stk.