Brava Límeyðandi servíettur
Veldur ekki sviða og auðveldar losun á stómaplötunni
Með Brava límeyðandi er auðvelt að fjarlægja stómaplötuna og mögulegar límrestar
af húð, án þess að það hafi áhrif á límgetu nýrrar stómaplötu/ festibúnaðar.
Brava® Límeyðandi auðveldar þér að fjarlægja stómaplötu og mögulegar límrestar af húðinni án vandræða.
Límeyðirinn inniheldur ekki alkóhól, svo það svíður hvorki né verkjar þegar hann kemst í snertingu við húðina.
Hann þornar á nokkrum sekúndum og hefur ekki áhrif á festigetu og því er allt klárt fyrir ásetningu nýrrar stómaplötu
Brava Límeyðandi fæst bæði sem sprey og í servíettum. Spreyið auðveldar losun plötunnar og gott er að nota servíettur til að fjarlægja mögulegar límrestar af húð.
Servíetta er ennfremur handhæg þegar þú ert að heiman eða á ferðalagi.
30 stk. í pakka