Ný tegund af alsjálfvirku hjartastuðtæki sem býður upp á 4 tungumál: íslensku, ensku, pólsku og þýsku. Tækið er notendavænt og krefst engrar sérfræðiþekkingar af hálfu notanda. Tækið leiðbeinir notandanum skref fyrir skref með stuttum, hnitmiðuðum raddleiðbeiningum.
Raddleiðbeiningarnar eru á íslensku en val er á milli fjögurra tungumála og auðvelt að skipta á milli á meðan notkun stendur með sérstökum takka.
Tækið mælir viðnám brjóstholsins fyrir örugga og árangursríka meðferð þegar elektóðurnar hafa verið settar á einstaklinginn.
Daglegt sjálfspróf: Tækið framkvæmir daglegt sjálfspróf og lætur vita ef eitthvað er að.