Frí heimsending þegar verslað er yfir 10.000 kr. eða meira, allt að 20 kg.
Menu
Innkaupakarfa
Engar vörur í körfu.

Hreiðrið - Lasal legukerran

22 mars, 2018

Hreiðrið er legukerra fyrir börn og fullorðna með rafknúnum stillingum þar sem hægt er að hreiðra um sig með hjálp grjónapúða af ýmsum stærðum og gerðum. Kerran auðveldar hreyfihömluðu fólki sem er í liggjandi stöðu að taka þátt í daglegu lífi og umgangast aðra. Hentar bæði börnum og fullorðnum, kerran er lengd með því að draga hana sundur, og getur því vaxið með börnum til fullorðinsára. Kerran er ætluð til notkunar innandyra en má nota úti t.d á palli og stétt þar sem undirlag er slétt.

Hægt er að velja dýnu eða þykkan grjónapúða sem formast að líkamanum í kerrubotninn, ef það hentar ekki má sérsníða dýnur að þörfum. Fjöldi grjónapúða er í boði, púðarnir styðja við líkamann þar sem þörf er á og hjálpa til að skapa bestu og þægilegustu stöðu fyrir notandann. Rafknúin stilling er á hæð kerrunnar bak og fóthluta, því er auðvelt er breyta stillingum og velja heppilegustu stöðu hvort sem það er liggjandi eða sitjandi.