SenSura® Mio Convex Mjúkur 1-hluta tæmanlegur poki
SenSura® Mio 1-hluta tæmanlegur poki er með skálalaga (Convex) stómaplötu sem tryggir
stöðugleika í kringum inndregið stóma.
Plata er teygjanleg og aðlagar sig að mismunandi líkamsgerð einstaklinga.
Pokinn er lítt áberandi þar sem efnið er í gráum hlutlausum lit.
SenSura® Mio Convex tryggir örugga aðlögun að líkama hvers einstaklings þrátt fyrir fellingar og
dældir í húð og stómíum sem þarf að þrýsta fram.
SenSura® Mio Convex er lítt áberandi þökk sé mörgum nýstárlegum eiginleikum.
Kostir:
Sveigjanleiki Convex plötunnar veitir einstakan stöðugleika í kringum stómað og fylgir hreyfingum líkamans eftir
Teygjanleg plata tryggir örugga festingu þrátt fyrir mismunandi líkamsbyggingu einstaklinga
Hlutlaust grátt efni sem er lítt áberandi
Einstakur hringlaga loftventill sem dregur úr loftmyndun í pokanum
Á SenSura Mio Convex 1-hluta pokanum er hin teygjanlega plata föst á pokanum.
Þegar skipt er um poka er því bæði skipt um poka og plötu.
Breitt vöruúrval er af SenSura Mio Convex 1-hluta tæmanlegum pokum með skálaplötu,
bæði með tilklipptum plötum og tilklippanlegum sem sníða má eftir ummáli stómans.
Þrjár mismunandi dýptir eru til, til að mæta mismunandi þörfum einstaklinga: Light, Mjúk og Djúp.
Pokinn fæst í mismunandi stærðum í hinum hlutlausa gráa lit, með skoðunarglugga og festingum fyrir belti.
Light Convex veitir meðal stuðning í kringum stóma. Hentar vel þar sem op stómans er í hæð við
húð og þar sem meðal og minni dældir eru i kringum stómað og þrýsta þarf stómanu fram.
Mjúkur Convex veitir mjúkan stuðning í kringum stómað.
Hentar vel þar sem stóma nær rétt upp fyrir yfirborð húðar og þar sem hrukkur
og minni fellingar valda vandræðum.
Djúpur Convex er hannað þar sem op stómans er undir yfirborði húðar og mikil þörf fyrir stuðning
og þrýstingi til að ná stómanum fram.
Magn í pakka
10 stk.