SenSura® Mio Flex lokaður poki
SenSura® Mio er stómavörulína, hönnuð til að aðlaga sig að mismunandi líkamsgerð einstaklinga,
þökk sé teygjanlegri plötu og með poka sem ber lítið á, því efni pokans er í gráum hlutlausum lit.
SenSura® Mio tryggir örugga aðlögun að líkama hvers einstaklings og er lítt áberandi
þökk sé mörgum nýstárlegum eiginleikum.
Kostir:
• Teygjanleg plata sem tryggir örugga festingu þrátt fyrir mismunandi líkamsbyggingu einstaklinga
• Hlutlaust grátt efni sem er lítt áberandi
• Einstakur hringlaga loftventill sem dregur úr loftmyndun í pokanum
• Flex festibúnaðurinn aðlagar sig að líkamslögun og er sléttur og fyrirferðalítill
SenSura® Mio Flex er samsett kerfi plötu og poka (2ja hluta kerfi).
Því er hægt að skipta um poka án þess að skipta um plötu.
Hægt er að fá breytt úrval af SenSura Mio Flex plötum, með tilklipptum götum eða tilklippanlegum, sléttum og kúptum. Pokinn er límdur á plötuna með Flex límfestingu sem er flöt og lítið áberandi.
SenSura® Mio Flex lokaðir pokar fást í mismunandi stærðum, glærir eða í hlutlausum gráum lit, með eða án glugga. Stærðirnar á Flex hringnum eru 35, 50, 70 og 90 mm í þvermál.
Magn í pakka.
30 stk.