Frí heimsending þegar verslað er yfir 10.000 kr. eða meira, allt að 20 kg.
Menu
Innkaupakarfa
Engar vörur í körfu.

Kynning á Smart Drive MX2+ og Roho sessum

01 febrúar, 2022

Sölustjóri frá Permobil mun kynna helstu nýjungar m.a. stillingar á sessum og ný sessa Hybrid Select verður kynnt til sögunnar. Farið verður yfir Smard Drive hjálparmótor á hjólastóla og nýtt snjallúr kynnt og uppfærsla á búnaðinum í gegnum app.

Vörurnar verða til sýnis og prófunar.

Við bjóðum iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og aðra fagaðila velkomna.

Kynningin verður haldin fimmtudaginn 17. febrúar kl. 9:00-12:00 í nýjum sýningarsal Stuðlabergs heilbrigðistækni að Stórhöfða 25, 3 hæð.

Boðið verður upp á léttan hádegisverð.

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Ingólfsdóttir, iðjuþjálfi á johanna@stb.is

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir þriðjudaginn 15.febrúar á johanna@stb.is

Við hlökkum til að sjá ykkur