Nýjasta útfærslan af hjartastuðtæki frá Primedic.
Raddleiðbeiningar á 6 tungumálum: íslensku - ensku - pólsku - þýsku - frönsku - kínversku (Mandarin)
HeartSave myPAD er minnsta og léttasta hjartastuðtækið frá Primedic. Tækið er aðeins 15x15 cm og 1,1 kg eða á stærð við lítið nestisbox. MyPad er alsjálfvirkt og tilbúið til notkunar þegar kveikt er á tækinu og raddleiðbeiningar heyrast. Á tækinu er 4.3" LCD litaskjár sem veitir myndræna leiðsögn á meðan ferlinu stendur. Ekki er þörf á að ýta á hnapp til að veita hjartastuð, heldur skynjar tækið sjálft þegar það er gert. Tækið hentar því jafnt óreyndum sem reyndum notendum.
Eiginleikar myPAD
- Sex tungumál: íslenska, enska, pólska, þýska, franska og kínverska (Mandarin)
- Stigvaxandi orka í hverju hjartastuði: Allt að 200 J
- Barnahnappur: sérsniðin stilling/orka 50 J fyrir börn án þess að þurfa sérstök barnarafskaut
- Daglegt sjálfspróf: tækið framkvæmir daglegt sjálfspróf sem tryggir virkni tækisins og sýnir stöðu rafhlöðu og rafskaut
- Rafhlaða: Endist í allt að 5 ár
- Rafskaut: Endast í allt að 5 ár
Tækniupplýsingar
- Tækið er aðeins 15x15 cm og vegur 1.1 kg (70% minna og 60% léttara en fyrri kynslóðir hjartastuðtækja)
- 4.3" LCD litaskjár sem veitir myndræna leiðsögn
- Ryk- og vatnsvarið (IP66) - þolir íslenskt veðurfar, raka og hnjask
- Umhverfishitamörk: þolir hitastig frá -5°C upp í 55°C
- 8 ára ábyrgð frá framleiðanda
Fyrirspurnir sendist á kristrun@stb.is