Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) eru með samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.
Að sækja um hjálpartæki
Iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari eða læknir getur sótt um hjálpartæki. Umsókn berst til Sjúkratrygginga Íslands sem annað hvort veitir samþykki fyrir hjálpartæki eða synjun. Ef veitt er samþykki fyrir kaupum á hjálpartæki frá Stuðlabergi heilbrigðistækni ehf berst okkur sú beiðni rafrænt og við afgreiðum hana eins fljótt og auðið er. Vörur innan Reykjavíkur og nágrennis eru keyrðar út af okkur en vörur sem fara út á land eru sendar með flutningsaðila.
Stuðlaberg heilbrigðistækni efh. annast viðgerðir á þeim hjálpartækjum sem við erum með umboð fyrir. Hægt er að senda þjónustubeiðni á hjalp@stb.is. Sími: 569-3190.
Hér er hægt að sjá þær vörur sem eru í samningi við SÍ.

Sjúkrarúm, fólksflutningar og fylgihlutir í samningi við Sjúkratryggingar Íslands
Sjá hér: https://issuu.com/eirberg/docs/sj_krar_m_og_f_lkslyftarar

Bað- og salernishjálpartæki í samningi við Sjúkratryggingar Íslands
Sjá hér: https://issuu.com/eirberg/docs/stb__bad_og_salernishjalpartaeki

Hjólastólar og gönguhjálpartæki í samningi við Sjúkratryggingar Íslands
Sjá hér: https://www.sjukra.is/media/gatlistar-hjalpartaekja/Vorulisti-hjolastolar-og-gonguhjalpartaeki-2020-skjavaent-18122020.pdf
Á vefsíðu sjukra.is má finna eftirfarandi upplýsingar:
Upplýsingahefti um samninga og vörulista:
https://www.sjukra.is/lyf-og-hjalpartaeki/hjalpartaeki/um-hjalpartaeki/samningar-um-hjalpartaeki/upplysingahefti_um_samninga_og_vorulista/