Frí heimsending þegar verslað er yfir 10.000 kr. eða meira, allt að 20 kg.
Menu
Innkaupakarfa
Engar vörur í körfu.

Sempermed einnota hanskar

19 nóvember, 2018

Austuríska fyrirtækið Sempermed er einn stærsti framleiðandi af einnota hönskum í heiminum með yfir 100 ára sögu í framleiðslu á einnota hönskum. Öll framleiðsla á Sempermed hönskum fer fram í þeirra eigin verksmiðjum og því er umfangsmikil gæðastýring í framleiðslu- og prófunarferlum.

Sempermed hanskar eru hannaðir og framleiddir eftir hreyfingum og lögun handanna. Hönnun hanskanna stuðlar því að meiri þægindum og veldur síður þreytu í fingrunum við langvarandi notkun. Framúrskarandi framleiðslutækni og ISO vottað prófunarferli tryggir áreiðanleika, þægindi og vörn gegn sýkingum. Sempermed hanskar standast ávallt samanburð í gæðum og þægindum.

Hjá Stuðlabergi starfar samhentur hópur með þekkingu og reynslu í heilbrigðisvörum. Með hagkvæmum innflutningi beint frá verksmiðju bjóðum við vandaða hanska á góðu verði. Endilega hafið samband fyrir frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 569-3180 eða á stb@stb.is