Frí heimsending þegar verslað er yfir 10.000 kr. eða meira, allt að 20 kg.
Menu
Innkaupakarfa
Engar vörur í körfu.
RSS

Fréttir

Hreiðrið er legukerra fyrir börn og fullorðna með rafknúnum stillingum þar sem hægt er að hreiðra um sig með hjálp grjónapúða af ýmsum stærðum og gerðum. Kerran auðveldar hreyfihömluðu fólki sem er í liggjandi stöðu að taka þátt í daglegu lífi og umgangast aðra. Hentar bæði börnum og fullorðnum, kerran er lengd með því að draga hana sundur, og getur því vaxið með börnum til fullorðinsára.
Anios er franskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á hreinsi- og sótthreinsiefnum fyrir sjúkrastofnanir, en Anios er einnig stórt innan matvæla og snyrtivöruiðnaðarins. Anios stendur mjög framarlega í allri þróun á sértækum sótthreinsiefnum sem og prófunum og evrópskri skráningu innan nýja REACH skráningarkerfisins. Stuðlaberg hefur verið í metnaðarfullu samstafi við Anios í nokkur ár við kynningu og innleiðingu á hreinsi og sótthreinsiefnum fyrir sjúkrastofnanir, skurðstofur og gjörgæslu. Lengst af hefur Sjúkrahúsið á Akureyri unnið með okkur og hefur tekið inn þó nokkuð af sótthreinsiefnum fyrir yfirborð og skurðáhöld sem og hreinsiefni fyrir almenn yfirborðsþrif. Haldin hafa verið fræðsluerindi framleiðanda með starfsfólki sjúkrahússins undanfarin ár.
Þröskuldarampar 02 febrúar, 2018
Þröskuldarampar í mörgum stærðum. Ramparnir eru samsettir úr nokkrum mismunandi einingum og ættu því að henta flestum gerðum þröskulda. Þröskuldarampar - Varanleg lausn jafnt sem tímabundin